top of page

ATVINNULÍFIÐ
Verðmætasköpun sem undirstaða velferðar
Öflugt atvinnulíf er forsenda velferðar, ekki andstæða hennar. Ég vil að Hafnarfjörður sé aðlaðandi fyrir fyrirtæki, frumkvöðla og nýsköpun með skýru regluverki, einföldum ferlum og góðri þjónustu.
Í borgarlegu samfélagi á hið opinbera að vera bakhjarl, ekki flöskuháls. Með því að virða frumkvæði einstaklinga, halda álögum í hófi og tryggja fyrirsjáanleika skapast störf og tekjur sem gera okkur kleift að efla þjónustu við íbúa án þess að auka byrðar þeirra.
bottom of page