top of page

Stafrænar lausnir og þjónusta
Einfaldara með snjöllum lausnum
Með skynsamlegri notkun tækni má bæta þjónustu, stytta biðtíma og draga úr kostnaði. Ég vil að Hafnarfjörður verði sveitarfélag þar sem samskipti við bæinn eru einföld, skilvirk og gagnsæ.
Tæknin á að minnka flækjustig hins opinbera, ekki auka það. Með stafrænum lausnum getum við bæði aukið þjónustugæði og hagrætt í rekstri, sem styður við markmið mín um ábyrg fjármál og öfluga grunnþjónustu.
bottom of page